Þverá Ólafsfirði

Þverá Ólafsfirði

         

 

                                                                                        

 Árið 2007 hóf Laugará ehf framkvæmdir á frístundabyggð á Þverá í Ólafsfirði.

Teiknuð voru 21 hús í fyrsta áfanga og er framkvæmdum að ljúka um þessar mundir á fyrstu 5 húsunum. 

Búið er að ráðstafa 2 fyrstu húsunum en áætlað er að leigja hin 3 húsin út og verða þau tilbúin nú um páskana þó verða framkvæmdir utanhúss við 2 af þeim húsum ekki kláraðar fyrr en snjóa leysir og frost er farið úr jörðu.

 

Eitt húsanna er 60 m² með 2 svefnherbergjum. 4 kojur eru í öðru herberginu en hjónarúm í hinu.  Einnig er svefnsófi í stofu.  Heitur pottur er við húsið og steypt verönd með hitalögn. Það hús er að fullu búið.


Hin 2 húsin eru 100m² hvort, með 2 svefnherbergjum, stofa og eldhús samliggjandi og glerskáli með heitum potti. Svefnaðastaða fyrir 6 manns.  Góð forstofa og geymsla er í húsinu.Upphitaðar stéttar verða við húsin. 

Áætlað er að upphitaður völlur verði tekinn í notkun á svæðinu um mitt sumar og verður því hægt að nýta hann jafnt sumar sem vetur.

 

 

 

 

 

                                                                                            Ljósm:Gísli Kristinsson

Þverá er 7 km innan við kaupstaðinn Ólafsfjörð.

Hugmyndin með frístundabyggð á þessu svæði er að þetta er mikið útivistarsvæði jafn sumar sem vetur.

Í fyrrasumar var svæðið girt af og gróðursettar voru 32.000 plöntur.  Fyrir 4 árum var borað eftir heitu vatni og kom þá  það mikið heitt vatn að það mun  nýtast allri þeirri uppbyggingu sem gert er ráð fyrir á svæðinu og vel það.

 

Margar merktar gönguleiðir eru á eða við svæðið ber þar að nefna Tröllaskaga, Héðinsfjörð, gönguleið um Ólafsfjarðarskarð inn til Fljóta og ýmsar leiðir yfir í Svarfaðardal.

Golfvöllur og sundlaug eru í Ólafsfirði, bleikjuveiði í Ólafsfjarðará og gott svæði fyrir fjórhjólaáhugamenn.  Hægt er að fá leigðan bát til veiða í firðinum.  Einnig veiðist mikið af fiski á bryggjunni í Ólafsfirði (sérstaklega seinnihluta sumars). 

Ólafsfjörður er líka þekktur fyrir mikið berjaland.

Ýmsar uppákomur eru yfir sumarið í Ólafsfirði og má þar nefna Nikulásarmót þar sem um 20 knattspyrnufélög víðsvegar af landinu eru skráð til leiks.  Tónlistarhátíðin Berjadagar er haldin ár hvert auk Blúshátíðar sem einnig hefur fest sig í sessi.

Fjöldi uppákoma er bæði á Dalvík og Siglufirði og má þar nefna Fiskidaginn mikla á Dalvík og Síldarævintýrið á Siglufirði. Einnig eru þar stór íþróttamót yfir sumarið fyrir yngri kynslóðina.

 

Þverá býður einni upp á mikla möguleika yfir vetrartímann. Gott svæði til skíðagöngu og snjósleðaferða.  Þegar Héðinsfjarðargöng verða tilbúin verður þetta svæði miðpuntur þriggja mjög góðra skíðasvæða sem bjóða uppá upplýstar skíða- og göngubrautir á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík.

Til Siglufjarðar og Dalvíkur verða 15-18 mín. akstur frá Ólafsfirði.  Ólafsfjarðarvatn er eitt eftirsóknasta vatn til dorgveiði.

 

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 17904
Samtals gestir: 6234
Tölur uppfærðar: 10.9.2010 20:58:48